2005/12/01

Eintóm hamingja :)

Já það má segja að ég sé með eindæmum hamingjusöm þessa daganna :) ...þó læðist að mér samviskubit við og við því skólinn er ekki alveg nógu framalega í forgangsröðuninni þessa daganna :( ...en samviskubitið vegur nú samt ekki mjög þungt á móti allri gleðinni :D

Síðasta helgi var hreint út sagt frábær, Haffi yndi bauð mér til Akureyrar á bretti :) en þetta var í fyrsta skipti sem ég steig á svoleiðis grip, þetta gekk frekar brösulega hjá mér til að byrja með og ég uppskar lítið annað en blá og marin hné og auman bossa :( ...en svo var ég allt önnur á sunnudeginum ...komst bara á ágætis skrið og skemmti mér konunglega :) Hlakka til að fara aftur :) Nú verður maður bara að fara að fjárfesta í brett og stunda þetta!!

Næsta helgi verður ekki síðri og enn fær próflestur að sitja á hakanum. Jólaglögg annað kvöld og svo er uppáhalds parið mitt er að fara að gifta sig næsta sumar :) en það eru auðvitað Kristófer frændi og Larissa, þau koma frá London á morgun og að því tilefni verður smá trúlofunarveisla á ættaróðalinu, Útgörðum, á laugardaginn fyrir allra nánustu :) Það verður eflaust eitthvað glens frameftir svo ég verð þar fram á sunnudag.

Og svo á ég auðvitað afmæli á laugardaginn 3. des. :) verð 24 ára gömul :) það eiginlega hverfur í öllum þessum partýum svo það verður enginn tími til að halda neitt uppá það þetta árið!

Svo eru jólalögin farin að heyrast á öldum ljósvakans mér til mikillar ánægju :D en eins og þið vitið þá er ég algjör sökker fyrir jólalögum og syng þú út í eitt allan desember og fram á þrettándann :) ...fílustrumpar vinsamlegast beðnir um að halda sig fjarri frammyfir þann tíma!

0 comments: