Angela talaði mikið um það að við ættum ekki að dæma aðra og að það væri það mikilvægasta sem hún hafði lært á þessu öllu saman.
Hún tók dæmi um konu sem var verulega offeit og varð fyrir miklu aðkasti vegna þessa. En það sem fólk sem sér hana úti á götu og gangrýnir hana veit ekki er að þegar hún var 5 ára var henni nauðgað af 12 fullorðnum mönnum, ekki nóg með það heldur var svo harkalega farið að henni að það kom gat á annað lunga hennar svo það er ónýtt í dag, af þeim sökum hefur hún þurft að taka inn mjög sterk lyf allt frá þeim degi sem stuðla að offitu hennar, hún er mjög heilsuveil og á líklega stutt eftir.
Hún tók einnig dæmi um stúlku sem var gullfalleg, hæfileikarík menntaskólamær sem gekk vel í skóla, var yfirklappstýra, kærasta fyrirliða fótboltaliðsins og kom frá fyrirmyndarheimili - sem sagt "miss perfect". Hún hefur eflaust verið öfunduð af mörgum og margir baktalað hana eins og gengur og gerist á þessum árum. En það sem enginn vissi um hana var að nágranni hennar var sadómasókisti og hafði misnotað hana illilega frá 6 ára aldri. Svar hennar við þessu dimma leyndarmáli var að reyna að vera fullkomin á yfirborðinu til að reyna með öllum mætti að hylja yfir þessi ósköp. En þrátt fyrir velgengni hennar var þetta engin lausn - hún fyrirfór sér!
En það var þó eitt gott sem kom út úr þessu, hún skildi eftir bréf á rúmi sínu þar sem hún sagði foreldrum sínum frá þessu öllu saman, foreldrar hennar fengu bréfið birt í hverfis dagblaðinu og eftir það stigu 6 aðrar stúlkur fram sem höfðu orðið fyrir barðinu á sama manninum!
Þær höfðu allar verið í sama skóla en höfðu aldrei haft hugmynd um hvor aðra og að fleiri væru að ganga í gegnum sömu martröðina og þær sjálfar. Ef til vill höfðu þær gert hvorri annarri lífið leitt eins og er því miður allt of algengt í þjóðfélaginu.
Næst þegar einhver er að angra okkur, hegðar sér eins og hálfviti, kemur illa fram við alla í kringum sig eða vekur á sér neikvæða athygli þá skulum við staldra við og spyrja okkur af hverjumanneskjan hegðar sér svona áður en við förum að dæma hana - þú þekkir ekki sögu hennar!
En hvað getum við gert við þessu? það er hræðilegt að hugsa til allara þessara milljóna manna og kvenna sem verða fyrir misnotkun og getur hreinlega vakið hjá okkur uppgjafartilfinningu.
Þögnin er mesta ógnin! og eðli þessara brota er þannig að þau ala á skömm og sjálfshatri fórnarlambanna, þetta ruglar fólk/börn algjörlega í ríminu, því af líffræðilegum ástæðum finnst okkur kynlíf og snerting við kynfæri góð upplifun. Börn sem eru svift kynfrelsi upplifa sterka sektarkennd yfir því að upplifa ef til vill vellíðan þegar t.d. ofbeldismaðurinn/konan á munnmök við þau og finnst þau þar að leiðandi að einhverju leiti meðsek.
En þetta er alheimsvandamál sem verður að uppræta, þetta er ekki eingöngu vandamál kvenn heldur vandamál alls þjóðfélagsins. Það sem gleymist líka oft í umræðunni er að það eru líka konur sem misnota, stjúpmóðir Angelu tók t.d. fullan þátt í misnotkuninni, leiddi þau inn í herbergi til föður hennar þar sem hann lá allsber, fylgdist með og lét þetta viðgangast.
Það ættu allir að horfa á mynd hennar: http://searchingforangelashelton.com/">Searching for Angela Shelton, því við verðum öll að vera vakandi fyrir þessum málum. Við erum ábyrg, við verðum að tilkynna ef við verðum vör við einhver merki misnotkunnar.
Ég keypti myndina hennar á DVD og hvet alla til að fá hana lánaða hjá mér og horfa á hana :) Myndin verður líka sýnd í Regnboganum á morgun, laugardag kl. 18:00.
Þið getið líka farið inná: http://searchingforangelashelton.com/ til að kynna ykkur gerð myndarinnar betur.
En mikilvægast af öllu er að við tölum blátt áfram um þessi mál við ALLA sem við þekkjum konur og kalla og sérstaklega börn, öll börn í lífi okkar, börn á öllum aldri. Upplýsing og fræðsla er okkar eina vopn!
0 comments:
Sendu inn athugasemd