Vaknaði í seinnafallinu í morgun ...aðeins of kalt til að fara undan elsku sænginni minni :( ...en ég drattaðist frammúr á endanum, kveikti á tölvunni til að prennta út glærur og sá mér til mikillar ánægju að tíminn og vettvangsferðin féll niður :) ...ohh þetta var æðisleg tilfinning - ég hafði grætt hálfan dag eða svo ;) ...það kom auðvitað ekki til greina að nýta hann í eitthvað skynsamlegt eins og að byrja á eitthverju af þeim verkefnum sem býða mín eða leggjast í lestur skólabóka ...neee það var ekki alveg málið.
Ég hef stundum áhyggjur af því hvað ég get verið hræðilega sjálfri mér nóg ...ég gæti alveg legið heima svo dögum skiptir án þess að leiðast - hlustað á tónlist, lesið, spilað á gítarinn, sungið, borðað, bakað eða bara hreinlega starað út í loftið :)
Er eiginlega hræðileg öfgamanneskja því ég nærist líka soldið á því að vera á sífelldu spani, snúast í félagsstörfum, taka að mér allt í heiminum og helst giftast vinkonum mínum! Æj ég veit ekki ...botna stundum ekkert í sjálfri mér ...held að minn helsti kostur og jafnframt helsti galli sé að ég á nokkuð auðvelt með að leiða hjá mér amstur hversdagsins - láta eins og ég þurfi ekki að vera búin að skila ritgerð fyrir morgundaginn og fara þess í stað út á línuskaut eða eitthvað annað ónauðsynlegt sem mér dettur í hug.
En allaveganna sit ég hér fyrir framan tölvuna kl. 19.00 og er enn í náttbolnum mínum (er reyndar búin að bregða mér í flíspeysu, joggingbuxur og inniskó) með Evu mína Cassidy í tækinu og er ekkert búin að gera að viti í dag og líður bara hreint út sagt æðislega með það :) ótrúlega hamingjusöm :) Búin að vera að dunda mér við eitt og annað, ég stalst til að mynda til að opna Alkemistann, sem ég keypti um daginn á tilboði til að eiga sem tækifærisgjöf, og sökk alveg ofan í hana í dag og er nú að berjast við að opna ekki líka Ellefu mínútur (sem er einnig eftir Paulo Coelho) sem fylgdi með í tilboðinu ...væri sko alveg til í að eiga annan sonna góðan dag á morgun og lesa hana :)
En veruleikinn er þarna úti og ég held það væri hættulegt fyrir mig að taka einn dag til viðbótar ...þá veit ég ekki hvort ég myndi komast út aftur ...tja eða neeee ég er nú ekki alveg svo slæm er það?
En ég á að mæta á masterclass námskeið í FÍH kl. 10 í fyrramálið - ógó spennó - svo ég er nú ekki í neinni hættu í þetta skiptið :) svo er ég ekki með stöð2 ...sem er ekki gott fyrir forfallið Idol nörd eins og mig so ætli ég drífi mig nú ekki í smá heimsókn og kíki í leiðinni í innflutningspartý til Eygló frænku :)
Eigiði góða helgi ...og veriði soldið góð við ykkur ...þó ekki væri nema fyrir mig ;)
Ykkar Gudda #
0 comments:
Sendu inn athugasemd