2005/10/26

Ég vil ekki sjá ykkur!

Jæja þá er kvennafrídagurinn að baki. Þetta var alveg hreint frábær dagur :) allar konur svo glaðar og hrærðar :) Þegar ég var á leiðinni til Þórunnar frænku rúmlega 14 þá voru öll strætóskýli troðfull af brosandi konum, við öll ljós voru hópar kvenna arkandi í átt að miðbænum og umferðin var þá strax orðin þung í átt að Hallgrímskirkju og nánast bara konur undir stýri. Þegar ég keyrði svo útúr hverfinu hennar Þórunnar mætti okkur mikil bílaörtröð ...við vorum orðnar smá stressaðar að komast ekki í tíma niður í bæ ...en hver konan á fætur annarri vinkaði okkur útum bílgluggann og hleyptu okkur inn í bílarununa :) Svo lögðum við bílnum við Hlemm og gengum þaðan í samfloti með stríðum straumi hamingjusamra kvenna :)

En það var soldið fyndið að þegar við vorum að ganga upp Bergþórugötuna gekk á móti okkur maður sem hélt fyrir augun og rumdi til okkar ...ÉG VIL EKKI SJÁ YKKUR, ÉG VIL EKKI SJÁ YKKUR! Ég trúði varla mínum eigin eyrum og augum ...ekkert smá bitur! Ætli það sé mikið um þetta við horf meðal karlmanna? Ég vil ekki trúa því en þetta er greinilega til ...og ekki var hann að fela skoðun sína! Hann ætti að skammast sín!

En nóg um það ...en ekki þar með sagt að það sé komið nóg af umræðu um kvennréttindi ...ónei ...en geymum það til betri tíma :)

Góða nótt ***

0 comments: